Rakel Oddný framlengir

Handknattleiksdeild Hauka og Rakel Oddný Guðmundsdóttir hafa framlengt samning sín á milli til næstu þriggja ára. Rakel Oddný sem er 20 ára kemur úr sterkum 2004 árgangi Hauka sem vann til fjölda verðlauna í yngri flokkum. Rakel Oddný spilaði sem vinstri skytta í yngri flokkum en hefur verið að færa sig yfir í vinstra hornið og er hún ein af efnilegustu leikmönnum landsins.

Rakel Oddný sem á fjölda af landsleikjum fyrir yngri landslið Íslands er í hóp U-20 landsliðsins sem spilar á HM í Makedóníu seinna í júní. Það er mikið fagnaðarefni að Rakel framlengi samning sinn við Hauka og hjálpar liðinu verulega í að halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað á Haukaliðinu síðustu ár. Áfram Haukar!