Semaj Inge til Hauka

Það má segja að hlutirnir gerist hratt hjá Haukaliðinu því nú þegar hefur stjórn kkd. Hauka ráðið eftirmann Landon Quick sem sagt var upp störfum á þriðjudaginn. Í gær losaði kkd. KR sig við Semaj Inge og var hann ráðinn til Hauka í dag.

Semaj er bakvörður og lék 16 leiki með KR. Í þessum leikjum skoraði hann 18,7 stig að meðaltali, tók 5,4 fráköst og gaf 5,2 stoðsendingar og skilaði tæpum 20 púnktum í framlag.

Stjórn kkd. Hauka býður Semaj velkomin til starfa.