Síðastliðinn laugardag spilaði Berta Rut Harðarsdóttir sinn fyrsta leik í Olís deild kvenna þegar Haukar tóku á móti liði Fram á Ásvöllum. Það er frábært að fá að fylgast með okkar efnilegu iðkendum þroskast og eflast sem leikmenn. Við óskum Bertu sem er aðeins 16 ára öflug skytta til hamingju með áfangann og spennandi verður að fylgast með þessari efnilegu stúlku í framtíðinni.