Knattspyrnufélagið Haukar óskar að ráða starfsmann í hlutastarf í Frístundaheimili Hauka. Leitað er eftir barngóðum einstaklingi sem hefur yndi af börnum, er glaðvær, reglusamur og á gott með að starfa með öðrum.
Frístundaheimil Hauka hefur starfað í nokkur ár og byggir á þeim grunngildum sem félagið stendur fyrir, þróttmiklu íþrótta- og æskulýðsstarfi, þar sem styrkur hvers einstaklings fær notið sín.
Upplýsingar um starfið gefur:
Íris Óskarsdóttir, forstöðumaður Frístundaheimilis, sími 788-9200, iris@haukar.is