Stelpurnar fara í Kaplakrika á morgun

Marija Gedroit, stórskytta HaukaliðsinsÁ morgun, laugardag, heldur Olísdeild kvenna áfram en þetta er næst síðasta umferðin. Haukastelpur heimsækja nágranna sína úr Fimleikafélaginu og hefst leikurinn kl. 13:30. Staða liðanna í deildinni er þannig að Haukar eru í 6. sæti með 20. stig en FH í því 7. með 18. Liðin mættust 23. nóvember s.l. á Ásvöllum þar sem leikurinn endaði með jafntefli 19 – 19 (11 – 11). Haukastelpur hafa verið að bæta sig í hverjum leik og við skorum á fólk að mæta í Krikann á morgun og styðja þær til sigurs.

Áfram Haukar!