Síðasti útileikur Haukastúlkna fer fram í kvöld þegar þær halda upp í Grafarvog og mæta þar Fjölnisstúlkum kl.19:00. Haukaliðið siglir lygnan sjó um miðja deild en Fjölnisstúlkur eru á fullu í baráttu um sæti í úrvalsdeild og er leikurinn þeim afar mikilvægur. Okkar stúlkur ætla hins vegar að sjálfsögðu ekkert að gefa eftir og vilja enda tímabilið vel.
Allir á völlinn í kvöld! Áfram Haukar!