Haukar fara í heimsókn í Garðabæinn og munu etja kappi við nágranna sína í Stjörnunni í 18 umferð Dominos deildar karla í kvöld kl. 19:15 í Ásgarði.
Haukar hafa unnið síðustu þrjá leiki og hafa verið á nokkuð góðu skriði síðustu leiki. Það hafa einnig Stjörnumenn verið en þeir hafa verið að spila vel eftir áramót. Liðin sitja í 3 og 4 sæti deildarinnar, Stjarnan með 12 sigra og 5 töp en Haukar með 10 sigra og 7 töp. Leikurinn er þvi mikilvægur fyrir bæði, þar sem Haukar geta með sigri gert harða atlögu að þriðja sætinu.
Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta í Ásgarð og hvetja strákana til sigurs