Loksins er þessi langa pása búin og komið að næsta leik hjá meistaraflokki karla og það er enginn smá leikur þegar Eyjamenn koma í heimsókn á Ásvelli í kvöld. Leikurinn hefst kl. 18:30 á Ásvöllum og er Haukafólk hvatt til að fjölmenna og er um að gera að taka kvöldmatinn á Ásvöllum þar sem að hamborgara tilboðin verða á sínum stað í sjoppunni. Áfram Haukar!