Það mætti skrifa langa frétt um allt sem fór úrskeiðis í leik Íslandsmeistara Hauka í Evrópuleik þeirra gegn Naturhouse La Rioja í gær. Fjörtíu mistök í skotum og sendingum segja meira en mörg orð um það sem gekk á hjá liðinu í gær. Það var lyginni líkast að fylgjast með liðinu og því óöryggi, vantrú og hræðslu sem einkenndi leik þeirra. Eini ljósi punkturinn í leiknum var markvarslan en Birkir og Aron vörðu tæplega tuttugu skot, þar af varði Aron tvö víti. Spænska liðið þurfti lítið að hafa fyrir sigrinum og hann hefði orðið stærri ef strákarnir hefðu ekki aðeins sótt í sig veðrið undir lokin. Haukaliðið hefur farið vel yfir leikinn í gær á fundum í dag og eru staðráðnir í að gera miklu betur í seinni leik liðann sem hefst kl. 19 í kvöld. Það er heimaleikur Hauka. Haukasíðan mun setja inn stöðuna í leiknum á meðan á honum stendur líkt og gær.