Stuð og stemmning næsta laugardag 29. janúar á Herrakvöldi Hauka á Ásvöllum

HaukarÍ tilefni af 80 ára afmæli Hauka á þessu ári hefur verið sett saman spennandi afmælisdagskrá og er Herrakvöld Hauka fyrsti glæsiviðburðurinn á dagskránni.
Við hvetjum alla Haukamenn unga sem gamla, til sjávar og sveita að setja sig í stellingar, bursta skóna, setja brilljantín í hárið og smala saman öflugu liði skemmtilegra félaga og taka laugardaginn með stæl.  Það verður enginn svikin af matnum,  ljúfum tónum hinnar eldheitu Valgerðar Guðna og Mafíósanna, sprelli frá hinum vinsæla Ara Eldjárn og spennandi og óvæntum dansatriðum. Júlli diskó stjórnar síðan sveiflunni og stuðinu fram á rauða morgun en húsið opnar  á miðnætti fyrir ballgesti.
Forsala aðgöngumiða er á Ásvöllum til 27. janúar en einnig er hægt að panta miða á innkaup@haukar.is
Stöndum saman – skemmtum okkar saman – styðjum félagið okkar

KOMA SVO – ÁFRAM HAUKAR