Haukastrákarnir halda í Kópavoginn í kvöld og mæta liði HK í leik sem var frestað fyrr í vetur. Með sigri geta strákarnir styrkt stöðu sína á toppi deildarinnar og náð fimm stiga forystu á FH, Akureyri og Val sem eru öll með 11 stig í 2.-4. sæti. Leikurinn skiptir sömuleiðis HK miklu máli því með sigri geta þeir jafnað fyrrgreind lið að stigum og komist í deildarbikarinn. Það má því búast við hörkuleik í kvöld en hann hefst kl. 19:30 í Digranesi. Mætum öll og styðjum strákana í toppbaráttunni í þessum síðasta leik fyrir jól.