Styttist í að handboltinn fari af stað

Handboltatímabilið fer að byrja aftur!

Nú er handboltatímabilið rétt handan við hornið og eru stelpurnar að taka þátt í sterku æfingamóti í Svíþjóð þessa dagana. Hægt er að fylgjast með leikjunum gegn gjaldi hér, https://handbollplay.se/annlizcup/
Strákarnir taka svo þátt í Hafnarfjarðarmótinu sem hefst 20. ágúst og verður leikið að Ásvöllum þetta árið.

Þá munu bæði kvenna- og karlaliðin okkar keppa í Evrópukeppninni í vetur og verður gaman að fylgjast með þeim máta sig við erlend félög.

Hvetjum okkar frábæra íþróttafólk til sigurs! Fylgist með leikjadagskránni og öðrum upplýsingum á okkar samfélagsmiðlum. Stuðningur ykkar skiptir máli!
Saman gerum við tímabilið ógleymanlegt.

Áfram Haukar!