Nú er fótboltasumarið að hefjast og skemmtilegir tímar framundan hér á Ásvöllum. Þann 21. maí næstkomandi verður fyrsti heimaleikur hjá meistaraflokki karla á Íslandsmótinu og á þeim degi verður mikið um að vera, meðal annars munum við vígja nýju stúkuna okkar. Leikurinn er gegn BÍ/Bolungarvík og hefst hann kl. 14.00.
Mikil vinna er í kringum heimaleikina og þar vinna margar hendur létt verk. Haukar í horni og aðrir sjálfboðaliðar sjá um að vinna þetta óeigingjarna starf. Við erum sífellt að leita að nýjum aðilum til að koma að þessu starfi og ef þú villt leggja hönd á plóginn á heimaleikjunum í sumar hringdu þá eða sendu póst á:
Grétu Grétarsdóttur, gretagretars@gmail.com, s. 660-2767
Steinunni Hauksdóttur, sth@isor.is, s. 822-1999
Hlökkum til að heyra frá ykkur.
Áfram Haukar!