Sunna Líf Þorbjörnsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára.
Sunna, sem er á 21. aldursári, á að baki 53 leiki með meistaraflokki kvenna og fagnar stjórn knattspyrnudeildar Hauka nýjum samningi og bindur miklar vonir við hana á komandi tímabili.