Tap gegn Fjölni

HaukarHaukastelpur biðu lægri hlut fyrir Fjölni á föstudagskvöldið sl. og urðu lokatölur 2-0 Fjölni í vil en leikurinn fór fram í Grafarvogi. Leikurinn var jafn allan leikinn en hvorugu liðinu gekk mikið að skapa sér færi, þau fáu sem sköpuðust nýttu heimastúlkur hins vegar betur og skoruðu tvö mörk með sköllum úr teignum. Haukastelpur hafa nú tapað þremur leikjum í röð en sitja eftir sem áður í 6. sæti þessarar mjög svo jöfnu deildar. Síðasti leikur stelpnanna í sumar fer fram á Schenkervellinum að Ásvöllum á föstudaginn næst komandi kl.20:00.

 

Tap gegn Fjölni

HaukarHaukar mættu í gærkvöld Fjölni í Schenkerhöllinni í Iceland Expressdeild kvenna í körfubolta. Leikurinn var jafn og vægast sagt spennandi en þegar uppi var staðið höfðu gestirnir úr Fjölni eins stigs sigur 68-67 eftir mikin hasar á lokamínútunum.

Stigahæstar okkar stúlkna voru : Jence Rhoads með 31 stig, Íris Sverrisdóttir og Margrét Hálfdánardóttir gerðu 10 stig hvor.