Halldór Harri Kristjánsson hefur ákveðið að ganga til liðs við handknatttleiksdeild Hauka og taka þátt í uppbyggingarstarfi félagsins. Halldór oftast kallaður Harri hefur mikla reynslu í þjálfun og hefur síðustu 3 árin þjálfað Molde í Noregi.
Harri verður hluti af þjálfarateymi mfl. kvenna ásamt Einari Jónssyni aðalþjálfara liðsins. Ásamt þjálfun í meistaraflokki mun Harri stýra uppbyggingarstarfi í 3fl og 4fl kvenna. Það er sannkallaður hvalreki fyrir okkur Haukamenn að fá mann eins og Harra til liðs við okkur. Harri mun hefja störf eftir sumarfrí leikmanna.