Bikarúrslit yngri flokka í körfubolta fara fram um helgina í Ásgarði. Haukar eiga tvö lið um helgina en það er 10. flokkur kvenna og stúlknaflokkur.
Í dag laugardag eru það stelpurnar í 10. flokki sem spila gegn Keflavík og hefst leikurinn kl. 12.00.
Á morgun sunnudag eru það stelpurnar í stúlknaflokki sem spila gegn Keflavík og hefst leikurinn kl. 14.00.
Bikarúrslitahelgi yngri flokka er frábær viðburður og er hægt að sjá marga skemmtilega leiki.
Leikirnir verða í beinni útsendingu á Sporttv.is sem og í beinni tölfræðilýsingu á KKÍ.is
Sjáumst á vellinum.
Áfram Haukar!!!