Tveir hjá Haukum í U18 ára landsliði karla

Þeir Andri Scheving og Darri Aronsson voru valdir í  22 manna hóp hjá U18 ára landsliðs karla í handbolta. Hópurinn kemur saman til æfinga 9. – 12. júní n.k. Eftir það verður valinn 16 manna lokahópur sem tekur þátt í æfingamóti í Þýskalandi í lok júní og EM í Króatíu í ágúst.

Við óskum þessum efnilegu drengjum innilega til hamingju með valið og vonumst að sjálfssögðu til að þeir komist á lokakeppni EM.

Darri og andri