Nú á dögunum framlengdu ungir og efnilegir Haukastrákar samninga sína við félagið en þetta eru þeir Guðmundur Bragi Ástþórsson, Jakob Aronsson, Jón Karl Einarsson, Kristófer Máni Jónasson, Magnús Gunnar Karlsson og Þorfinnur Máni Björnsson.
Guðmundur Bragi sem er 18 ára miðjumaður og skytta kom vel inn í meistaraflokkslið Hauka áður en Covid pásan skall á og kom hann við sögu í öllum leikjum liðsins. Þar að auki er hann markahæsti leikmaður Grill 66 deildarinnar. Guðmundur hefur í 2002/2003 landsliði Íslands og gerði samning fram á sumarið 2024.
Jakob sem er 18 ára línumaður lék vel með meistaraflokki í undirbúningnum en varð fyrir því ólani að puttabrotna og lék því ekki neina leiki fyrir Covid pásuna. En núna er hann orðinn klár og er hann lykilmaður í U-liði Hauka í Grill 66 deildinni ásamt því að leika með meistaraflokki. Jakob hefur verið í 2002/2003 landsliði Íslands og gerði samning fram á sumarið 2024.
Jón Karl sem er 19 ára vinstri hornamaður stimplaði sig vel inn í fyrsta leik með meistaraflokki á móti Gróttu í haust þegar hann skoraði 4 mörk úr jafnmörgum skotum í fjarveru Orra Freyrs. Hann meiddist svo á öxl í leik með U-liðinu rétt fyrir Covid pásuna en er að nálgast fyrri styrk og verður mikilvægur hlekkur í báðum liðum. Jón Karl hefur verið viðloðandi 2000/2001 landslið Íslands og gerði samning fram á sumarið 2024.
Kristófer Máni sem er 18 ára hægri hornamaður kom vel inn í meistaraflokkslið Hauka áður en Covid pásan skall á og kom hann við sögu í öllum leikjum liðsins. Hann er einnig lykil leikmaður í U-liðinu þar sem hann hefur leikið undanfarin 3 ár og verið hægt og bítandi að fá stærra hlutverk. Kristófer Máni hefur verið í 2002/2003 landsliði Íslands og gerði samning fram á sumarið 2024.
Magnús Gunnar sem er 18 ára markmaður hefur verið þriðji markvörður meistaraflokks undanfarin í vetur. Auk þess hefur hann verið í U-liðinu síðustu ár þar sem hann fær sífellt stærra og stærra hlutverk. Magnús Gunnar hefur verið viðloðandi 2002/2003 landsliði Íslands og gerði samning fram á sumarið 2023.
Þorfinnur Máni sem er 18 ára vinstri hornamaður hefur verið viðloðandi meistaraflokk á þessu tímabili ásamt því að spila með U-liði Hauka. Þorfinnur var á dögunum valinn í úrtakshóp fyrir 2002/2003 landsliði Íslands gerði samning fram á sumarið 2023.
Framtíðin er sannarlega björt á Ásvöllum og verður spennandi að sjá þessa stráka í Haukabúningnum á parketinu á komandi árum.