Meistaraflokkur karla í handbolta leikur á föstudag seinni úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn þegar Valur kemur í heimsókn á Ásvelli kl. 19:30. Strákarnir þurfa að vinna upp 3 marka forskot Vals sem unnu fyrri leikinn 32 – 29 en samalögð úrslit úr leikjunum 2 gilda.
Opnað hefur verið fyrir forskráningu fyrir Hauka í horni og iðkendur handknattleiksdeildar Hauka fyrir leikinn. Haukar í horni og iðkendur handknattleiksdeildar Hauka geta tryggt sér miða með því að senda tölvupóst á handbolti@haukar.is fyrir miðnætti á fimmtudag þar sem fram þarf að koma kennitala, nafn og símanúmer. Eins getur allt Haukafólk mætt á Ásvelli og keypt miða milli 13 og 16 á leikdag.
Önnur miðasala fer fram í Stubbur smáforritinu frá og með miðvikudeginum 16 júní (Stubbur.app)
Áhorfendur ganga inn um aðalinngang Ásvalla, en við vekjum athygli á aðskilda innganga fyrir stuðningsfólk liðanna inn í sal.
Haukafólk tryggið ykkur miða í tíma en nóg pláss er fyrir alla, fjölmennum á leikinn og hvetjum strákana okkar áfram til sigurs ‼️
Muna eftir grímunni og hugum að persónubundnum sóttvörnum.
🔴ALLIR Á VÖLLINN ALLIR Í RAUÐU 🔴
🔴ÁFRAM HAUKAR