Meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu mun leika til úrslita við lið Keflavíkur á morgun í C-deild Lengjubikarsins.
Leikurinn fer fram klukkan 19:30 á Ásvöllum.
Að sjálfsögðu hvetjum við alla stuðningsmenn félagsins að mæta og styðja við bakið á stelpunum sem hafa heldur betur verið að spila vel á undirbúningstímabilinu.
Þær unnu til að mynda riðilinn sinn með markatölunni 33-3 og undanúrslitaleikurinn fór 7-0 fyrir Hauka.
Allir að mæta á Ásvelli þriðjudaginn 3. maí, klukkan 19:30 og styðja við bakið á fótboltastelpunum.
Áfram Haukar!